Tengja PAX A920 posa frá Rapyd

Þessi hjálpargrein gildir einungis fyrir PAX A920 posa frá Rapyd, notið VeriFone hjálpargreinarnar fyrir VeriFone posa frá Rapyd.

Byrja fyrst á að opna kassakerfið

  1. Ýta á tannhjólið
  2. ýta á uppsetning
  3. Skrifa ppair eða positivepair og ýta á ok.

Þá kemur upp gluggi sem biður um IP address, bíða með hann opinn. Ef það þarf að nota kassann í millitíðinni má loka gluggunum, þá þarf bara að framkvæma skref 1-3 aftur þegar búið er að opna pair gluggan í posanum

Stundum byrjar posinn á Payments skjánum en þá þarf að ýta á 3 línurnar í efra hægra horninu og ýta á Exit til að komast aftur í aðalvalmynd

WebLink appið ætti að vera komið í posann, en ef það vantar þarf að heyra í Rapyd að bæta því í posann.

Næst þarf að fara inní WebLink.

Inn í WebLink

  1. Ýta á 3 punkta
  2. Ýta á Pair

Í Pair glugganum

Skrifa niður í kassakerfinu í gluggana sem koma upp eftir það er skrifað ppair skv. fyrstu myndinni í hjálpargreininni

  • Terminal Address (sleppa portinu sem er hjá mér :8080) = IP address

    Terminal Serial = Serial Number

    Pairing Code = pairing code (Þessi kóði er aðeins gildur í nokkrar mínútur þannig þarf að stimpla inn í kassakerfið innan við þann tíma)

Við það að stimpla allar upplýsingar rétt í kassakerfið ætti að koma "Successfully paired to payment terminal"

Hægt er að prófa með því að senda greiðslu í posann með kort greiðslutakkanum.

Svaraði þetta spurningunni? Takk fyrir endurgjöfina Það kom upp vandamál við að senda endurgjöfina

Vantar þig frekari aðstoð? Hafa samband Hafa samband