Bæta við staðsetningum og borðum

Ef um er að ræða veitingastað þar sem pantanir viðskiptavina þarf að skrá niður á borð er hægt að sotfna bæði sali (staðsetningaflokkar) og borð.
(Athugið að kassinn þarf að vera stilltur á Restaurant mode og best er að heyra í okkur til að virkja það)

Staðsetningarflokkar eru skráðir undir Sölukerfi -> Skráning og viðhald -> Staðsetningarflokkar

Nöfn og númer staðsetningarflokkana er val en athugið að röðin er frá vinstri til hægri er númerisk röðun og það er þægilegast að hafa stærsta salinn eða algengustu staðsetninguna lengst til vinstri.

Fyrir hvern sal (staðsetningarflokk) er svo hægt að skrá borðin, þjónarnir taka þá niður pöntun á borðin.

Borðin eru skráð undir Sölukerfi -> Skráning og viðhald -> Staðsetningar

Efri myndin sýnir hvar borðin eru skráð í kerfið og tengd við sal og fyrir neðan eins og það birtist á afgreiðslukassanum

Svaraði þetta spurningunni? Takk fyrir endurgjöfina Það kom upp vandamál við að senda endurgjöfina

Vantar þig frekari aðstoð? Hafa samband Hafa samband