Vörur

Upplýsingarnar sem nauðsynlegt er að skrá á vöruspjaldinu (Sölukerfi > Skráning og viðhald > Vörur) er að finna undir flipanum Innkaup.

Fyrst er mikilvægt að tengja vörurnar við birgja. Við tengjum vöru við birgja með því að opna vöruspjald, finna þar reitin Birgi og skrá viðskiptamann á vöruna.

Birgjar eru skráðir sem viðskiptamenn í kerfum Reglu og er hægt að finna nánari upplýsingar um skráningu viðskiptamanna hér.

Upplýsingar undir flipanum Innkaup verða útskýrð hér að neðan:

Magneining í innkaupum
Hér er hægt að velja úr fellilista þá magneiningu sem varan berst í.
Þessar upplýsingar eru þó ekki nauðsynlegar.

Magn í innkaupaeiningu
Skráið magnið sem varan berst í fyrir hverja pantaða einingu, t.d. ef að samtals 5 vörur koma saman í einni innkaupaeiningu þarf að skrá 5 stykki í þennan reit.

Pöntunarmagn
Þessi reitur er ætlaður sjálfgefnu magni sem á að panta. Ef vaninn er að panta 25 einingar, er þá hægt að skrá 25 í þennan reit og kerfið stingur upp á því magni þegar kemur að því að fylla út innkaupapöntun.
Athugið að þegar kemru að því að fylla út pöntun er alltaf hægt að yfirskrifa magnið.

Afhendingartími (dagar)
Sá tími sem tekur fyrir vöruna að berast frá birgja, skráð í dögum.

Gera pöntunartillögu
Hér þarf að haka við ef kerfið á að gera tillögu að pöntun ef birgðastaða fer undir lágmarks birgðamagn sem er útskýrt hér að neðan.

Föst álagning %
Ef föst álagning er á vöru þarf að skrá hana hér.

Lágmarksbirgðamagn
Mikilvægasti reiturinn undir innkaupaflipanum. Hér skráum við þá birgðastöðu sem við viljum að magn vörunnar á okkar lagerum fari aldrei undir. Kerfið fylgist með birgðastöðu vörunnar og ef birgðastaða er undir þessu marki mun kerfið gera tillögu að panta þurfi vöruna í innkaupapöntunar viðmótinu. Til þess að þessi tillaga verði gerð er mikilvægt að hakað sé í "Gera pöntunartillögu", magnið sem kerfið stingur upp á að panta er magnið sem skráð er í reitinn "Pöntunarmagn".


Svaraði þetta spurningunni? Takk fyrir endurgjöfina Það kom upp vandamál við að senda endurgjöfina

Vantar þig frekari aðstoð? Hafa samband Hafa samband