Búa til deild og/eða óvirkja deild

Hægt er að nota deildir til þess að skipta upp fyrirtækinu, t.d. eftir útibúum.

Ath. gjald er fyrir hverja deild umfram eina, sjá nánar í verðskrá.

1. Búa til deild frá grunni

Til þess að búa til deild frá grunni þarf að velja: Stjórnun / Viðhald skráa / Deildir.

  1. Sláðu inn nafn á deildinni
  2. Hægt er að hafa mismunandi VSK númer fyrir deildir ef búið er að virkja þann möguleika í Bókhald / Stjórnun / Stýringar
  3. Hægt er að velja lager fyrir deildina
  4. Smelltu á 'Stofna'

2. Óvirkja deild 

Ath. áður en þú óvirkjar deild þarf að færa starfsmenn sem eru á deild sem á að óvirkja á deild/ir sem á að halda áfram með.

Þetta er gert í Stjórnun / Viðhald skráa / Starfsmenn

Þar velur þú:

  1. starfsmann
  2. breytir deild
  3. velur uppfæra

Ef þörf er á því að fækka deildum þá er það gert með því að óvirkja viðkomandi deild. Veldu Stjórnun / Viðhald skráa / Deildir

Smelltu á hakið lengst til hægri í deildarlínu til að óvirkja

Svaraði þetta spurningunni? Takk fyrir endurgjöfina Það kom upp vandamál við að senda endurgjöfina

Vantar þig frekari aðstoð? Hafa samband Hafa samband